Gríma SUBERBEIB
Klukkan
25.10.2007 13:28:07 / grima

Gríma

Núna:

Bara leiklist.  Ritgerð vofir yfir og ætlar að éta mig.  Leiklist, skólinn.  Ferð um helgina, Fljótshlíð.......það verður gaman.

Einhverntímann hafði ég áhyggjur.  En ég man ekki lengur hverjar áhyggjurnar voru.  Allt verður í lagi.  Þetta reddast og kemur í ljós.

 Allt var stress, þá sérstaklega jólin og háannatíminn.  Einn var klettur, ein var það ekki.  Einn var rólegur, ein var það ekki.  Einn sagði ekkert, var ekki á staðnum til að verja sig.  Ein sagði sögur, sögur sem voru ekki sannar og einn gat ekki varið sig.  Kannski vildi einn ekki verja sig, einn fór burt.  Ef einn hefði verið hefðu hlutirnir kannski verið öðruvísi.

Allt svo miklu skýrara núna.  Stór í jafnvægi. Sé hlutina í öðru ljósi.  Allt öðru ljósi.  Sé hlutina á réttan veg, allt svo gott, þrátt fyrir sjúkleika og geðbilun.  Hjá öllum.  Hjá mér.

Já vil þetta.  Allt er breytt, breytt betra.  En samt hefur ekkert breyst.  Nema ÉG.  Gríma. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 08:41:35 / grima

Coffee and cigarets

Ahh.....nu er noregsdvølin ad fara ad taka enda.  En samt er margt eftir.  Oslo a føstudaginn og svo aftur a laugardag og svo heimfør a sunnudag.

Va hvad eg er buin ad læra margt tessa vikuna.  Buin ad læra ad reykja og allt saman......namskeidid mitt tessa vikuna het nefnilega Coffee og cigarets, tar vann eg senu i kring um kaffi og sigarettur.

Oja, svo er eg buin ad læra stagefight og einhverja acrobatic og svona.

Tetta er gaman, eg hef tad gott og eg hlakka til ad koma heim.


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.07.2007 21:23:48 / grima

Noregsfør

Ok, tá er komid ad tví.  Í dag er ég ad fara frá Sønnerskovgaard til frambúdar, kem aldrei aftur hingad!  Tad er god tilhugsun.

Ferdinni er fyrst heitid til Køben tar sem ég mun gista eina nott hjá Hrefnu og Torben og svo fer ég í flug kl.13 á morgun til Noregs.  Tad verdur ruglad gaman!

Í augnablikinu ríkir mikid millibilsástand, farandurinn er náttúrulega allt of mikill!  Planid var náttúrulega ad vera hér í ár, tannig ad madur tók bókastaflega allt med sér.  Svo er ég búin ad versla líka tannig ad tad hafa bæst svona 10-15 kíló vid.  Glatad ad turfa ad ferdast med allt tetta.....en svo sem ekkert hrædilegt, madur tekur tessu bara eins og tad er. 

En annars var ég í Køben sídustu helgi, versladi, skemmti mér og hitti helling af fólki.  Fór meira ad segja í ZOO med Bóbó!  MEGA

Já tetta er allt.  Ég veit ekki hversu dugleg ég verd ad blogga í Noregi en reyni mitt besta!  Svo kem ég náttúrulega heim 22.júlí!

 Sjáumst tá!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.06.2007 20:10:17 / grima

MUMU?

Tad eru engar mumu í tessari sveit, en nóg er af fýlunni.

Í dag treif ég heilt hús og las hálfa bók, bordadi ekkert nammi og hjóladi nokkra kílómetra.  Vei.:D8|


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 12:14:33 / grima

Heimanmundurinn, brundurinn

Hæ, hó.....

Tá get ég sagt frá einhverju.  Ég er ad koma heim.  Já, ég er hætt vid dvølina og hef ákvedid ad koma heim.......

Ástædurnar eru margar, en tær nenni ég ekki ad rekja hér, tví ég hef gert tad of oft nú tegar.  Tetta er ad baki og ákvørdunin hefur verid tekin.

Ég verd hér tangad til ég fer til Noregs, 4.júlí.  Svo kem ég ekkert aftur hingad heldur fer beint heim eftir Noregsdvølina, sem verdur gedveik!!

Tannig er tad nú.  Tad markmid sem ég er búin ad setja mér í dag, er ad draga einhvern lærdóm af tessu og nota hann.  Eins ætla ég ad njóta tess stutta tíma sem ég á hér eftir og gera starf mitt vel og meira en tad.....

Já já

 Ég brenndi mig á brennetlu i dag, tad var furdulegt!  Mér fannst eins og tad væri eitthvad inni í mér, og sá tá ad ég var ad fá einvherjar skrítnar bólur, ég sem var bara ad tína kál.......en allavega, ég turfti sem sagt ad nudda tetta af med naglabursta:S  Tad var frekar vont, en tad drap mig ekki.......og ég sem var bara ad tína kál.


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.06.2007 15:09:36 / grima

Já, einmitt

Á ég ad vera hérna.  Eda á ég ad verra hérna?

Nú er ég betri.  Nú er ég ekki svo einmana.  Nú tek ég tessu med ró og yfirvegun.  Tetta verdur í lagi, hvernig sem fer.

Alltaf ad læra.  Stundum verdur madur samt ad fá ad vera lítill í hjartanu.  Til ad geta sætt sig vid.

En á madur bara ad sætta sig vid?  Á manni ekki ad lída vel?

Tekur madur frí frá gamla lífinu, skóla, vinum, "kærasta" til tess eins ad sætta sig vid?  Til tess eins ad trauka?  Tekur madur ekki fríid til ad hafa gaman? Eda læra?

Og er tad ekki manns eigin lídan sem madur á ad hugsa um, en ekki adstædur og vidbrøgd annarra?  Eda rádleggingar og røk frá ødrum.  Stendur madur ekki, tegar allt kemur til alls, undir sinni eigin ákvørdun sjálfur, á eigin forsendum?

Tetta skilja vonandi teir sem hafa talad vid mig sídustu daga.  Hinir skilja ekki neitt.

Ég takka gód rád og røk, en ég verd ad fá ad gera tetta sjálf, tví ég ein veit hvernig mér lídur í nákvæmlega tessu umhverfi, á nákvæmlega tessum tíma.  Ødrum lidi sjálfsagt ødruvísi.

En ég læri, hvernig sem fer, hvad sem ég geri, tá læri ég á lífid.  Tad gera allir alltaf, tad er bara spurning hvernig teir nota lærdóminn, hina nýtilkomnu visku.

Ef vid tøkum ydjuleysingja.  Hann situr í sófanum og gerir ekkert nema ad glápa.  Hann lærir ýmislegt´í sjónvarpinu.  En hann notar tad ekki nema hann af-ydjuleysist.  Hann lærir líka ad tad kemur honum ekki áfram ad vera ydjuleysingi.  Hann veit tad, hann hefur lært tad, en hann notar ekki viskuna.

Já, ég er ekki ydjuleysingi.  Tví ætla ég ad nota viskuna og vitundina og breyta tví sem ég get breytt.  En ég hef líka tá visku ad ég get ekki breytt øllu.  Ég hef lært ad sætta mig vid tad.  Ég nota tví viskuna og sáttina og reyni ekki ad breyta tví sem ég veit ad ég get ekki breytt.  En ég breti tví sem ég get breytt.  Mér.


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.06.2007 18:01:52 / grima

Einmanaleiki

Já hann er sko til og fyrir honum hef ég fundid.  Í augnablikinu langar mig bara heim, heim ad vera.  Ég hef einhvern veginn ekkert ad gera hér, bara vinn og svo ekkert. 

(Afsakid lengdina á tessari færlsu......)

Tannig er ég bara ekki gerd.  Ég kann ekki ad sitja ad gera ekki neitt.  Nema ad hafa félagsskap audvitad.  Tá get ég tad.  Ad vera med einhverjum sem mér tykir vænt um er ad gera eitthvad.  Ég er ad gefa kærleika og thyggja hann.

En hér er vikan svona:Ég passa børn á hverjum degi og leik vid tau.  Svo tarf ég ad trífa á hverjum degi, ekki allt húsid en eitthvad.  Ég tarf ad thvo thvott, eins og tørf er á, og tetta geri ég med modur heimilisins, tegar hun er heima.  Svo tegar hun ferdast, ta tarf eg ad gera allt sem hun gerir, nema vinnuna hennar, meira ad segja sofa hjá manninum hennar........nei.

Mér finnst líka mjøg ótægilegt ad turfa ad vera a sama stadnum allan daginn.  Ég bara skil ekki hvernig fólk getur tetta.  Enda brosir hún ekki.  Mamman.  Bara upptekin af 400 fermetra húsinu sem tarf ad halda hreinu, fólkinu sem tarf ad fæda og allt tar á milli.  Ég hef ekki enn séd hana brosa.  Svo a sunnudøgum gera tau ekkert, bara frí.

Ég vil hafa hlutina ødruvisi.  Ég vil helst vinna á einum stad, eiga heima á ødrum.  Vera glød.  Eiga vini og fara i heimsóknir.  Fara út. Hitta fólk, allavega nokkrum sinnum i viku.  Hér hef ég bara tækifæri til ad hitta fólk um helgar.  Og ekki svo margt fólk.  Systur mínar og Jón.  Sem eg hef samt ekki enn haft samband vid.  En jú, systur mínar eru finar manneksjur og ég hlakka til ad vera med teim, hitta thær.  En tad er bara svo mikil tilbreyting i tessu.  Ad hafa eki vini sína hjá sér. Ad hafa ekki einu sinni vettvang til ad eignast vini, a sama aldri, eda øgn eldri kannski.

En ég er ad reyna ad horfa á gódu hlid-arnar á tessu.  Tad er vissulega reynsla ad vera einn úti í útløndum, frá teim heittelskada, grátandi úr mér augun.  Ég er viss um ad tetta er naudsynlegt fyrir alla ad prófa, vera einn og í hjartasorg.  Og taka líka einn úti í Danmørku, taka bara allan pakkann á tetta.  Tad er e-d sem allir turfa ad ganga i gegn um einhvern tíma.  Nema sumir sem eru heppnir, eda hvad?

Mig langar heim.  Tannig er tad bara.  En ef tetta væru nú bara tveir mánudir, hvad tá?  Væri ég tá ad gráta?  Ég held tad nefnilega.  Manni finnst allt langt tegar madur horfir fram á veginn.  En aftur a bak horft er allt svo fljótt ad lída, segja sumir.  Ég er ekki viss um ad ég sé sammála tví.  Mér finnst allt mjøg lengi ad lída og tegar ég horfi aftur á veginn segji ég, 'vá er bara vika sídan?' tví mér finnst vera lidnar tvær vikur, skiljidi?

Ég get svo alltaf bara hætt vid ef tetta gengur ekki eftir einhvern tíma.  En lágmark er ad ég gefi tessu 1 mánud.  Tad getur ekki tekid svo langan tíma.  Og tá er ég held ég ad ég verdi líka búin ad venjast og sjá allar hlidar á málinu.  Ekki bara tvo daga, tvær hlidar....er tad ekki?  En ég myndi ad sjálfsøgdu aldrei fara nema gefa tveggja til fjøgurra vikna frest.

Brosor aldrei......ég ekki heldur.  Ekki hér, ekki núna, nema í medvirkni, til tess ad vera kurteis tegar einhver horfir a mig.  Kurteisisbros.

Mig langar i óreglulegt líf.  Mig langar í óreidu.  Mig langar í soldid svona 'æ mér er alveg sama' fílinginn.  Hér er allt svo strangt, svo reglulegt og madur tarf alltaf ad vera ad gera e-d, á sama stad og madur slappar af.

Ef ad madur brosir ekki, ætti madur tá ekki ad vita ad tad er e-d ad?  Kannski er 400 fermetra hús of mikid.  Svona sérstaklega tegar madur tekur tad líka á sig ad tvo tvottinn, elda matinn og vaska upp og ganga frá?  Kannski myndi lítid og fallegt hús duga fyrir svo litla familie.

Svo líka annad.  Tegar ég var yngri var ég oft látin leggja á bord og sér í lagi átti madur ad setja í vélina sjálfur og hjálpa til.  Ég ryksugadi meira ad segja stundum......

En hér leggja børnin á bord, elda matinn, hreinsa allt húsid og taka allt til eftir sig.......Nei

Hér leggja børnin á bord eftir vikuplani og hjálpa svo til vid ad taka af eldhúsbordinu sem er mjøg gott, en tau setja tad bara a bekkinn, svo hinir fullordnu geti nú gengid almennilega frá.  En ef tad tarf ad ganga frá einhverju af dótinu teirra, tá geri ég tad, eda mamman.  Mér finnst tetta skrítid.  Ég fíla tetta ekki.

En jákvætt, med tessu mun ég ødlast tennan hugsunarhátt: Gera tad núna, annars verdur verkefnid bara stærra og tekur lengri tíma og tekr tannig tíma frá einhverju ødru verkefni og tá er madur komin í vítahring. 

Ég ber líka svona 100 sinnum meiri virdingu fyrir módur minni og fødur fyrir ad hafa alid mig upp vel, og ad hafa haldid heimili svona vel.  Ég veit ad tetta sem ég hef hér talid fyrir ofan, er e-d sem allir turfa ad gera.  Halda heimili.

Tess vegna held ég ad mig langi bara i litla íbúd og eiga lítid af dóti.  Allavega tannig ad tad sé audvelt ad trífa.  Ekki hafa glerhillur og svoleidis.......bara einfalt og lítid.

Mig langar ad vera hér.....stutt. Ekki í heilt ár.  Allt tad jákvæda sem ég sá vid tetta, tad tekur svo stuttan tíma.  Ad læra ad  elda e-d, ad ná gódum tøkum á dønskunni, ad ná tessum hugsunarhætti(sem ég nefndi hér fyrir ofan), ad prófa ad vera ein(tad má alltaf lengja og stytta tad)......ég held tetta taki allt saman svona 2 mánudi.  Audvitad hefdi ég gott af tví ad prófa ad vera ein adeins lengur, en ég held tetta sé ekki rétti tíminn.  (Kannski er ég tannig ad tad tekur mig 2 mánudi ad ná einhverju sem tók adra 3 ár hehe, sá taki tad til sín sem á.....)  Ég vil ekki vera hér svona lengi,øi heilt ár, ég bara vil tad ekki.

En ég ætla ad trauka núna.  Gráta smá, hringja heim, vera opin.  En núna eins og stadan er í dag tá sé ég fram á ad vera hér stutt.  Mesta lagi 3 mánudi.´

Ég sakna ykkar allra mjøg, eins tó alveg sérstaklega, og ég elska ykkur øll......

Gríma EINMANAÍDANMØRKU


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.06.2007 15:10:39 / grima

Danmørk

Jæja tá er madur kominn, og hvad svo?

 Ég er ekki mjøg ánægd i augnablikinu, tetta er ju ad skipta um lif........en eg er ad adlagast, vonandi sem fyrst

 Ég er búin ad taka nokkrar myndir en get ekki sett tær inn alveg strax, svo a ég heldur ekki myndasidu......og kann ekki ad bua til svoleidis, ef ykkur langar ta megid tid gefa mer rád....

Blogga meira næst


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 17:43:22 / grima

Danmerkurferð

Vá, skemmtileg tilviljun um leið og ég byrjaði að skrifa hljómaði í græjunum....,,í Köben, í Köben, hérn'í kóngsins Köbenhavn''.

 En allavega, ferðinni er ekki heitið alveg til Köben, en nálægt...... þetta er úti í sveit og er rétt hjá bæ sem heitir Haslev.

 Ég fer á föstudaginn næsta, 8.júní, einungis vika þangað til.  Það er ekki mikið.  Ég er ekkert stressuð um dvölina, þetta verður mjög gaman.  Mér finnst bara erfitt að kveðja, en það er allt í lagi, það er ekkert að eilífu......ég kem um jólin og svo aftur eftir ár, þetta verður bara gaman.  Erfitt en gaman.

Já, í þetta sinn ætla ég ekki að vera með neina speki.....vildi bara segja frá hvenær ég færi.

 Ef þið viljið frá póst(e-mail) frá DK, frá mér, þá endilega látið mig vita og ég bæti ykkur við póstlistann.


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 20:56:05 / grima

Danmörk

her kommer jeg.....i et år

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 23:31:25 / grima

Togstreita....en þagað þó

Á morgun er ég að fara að hitta Susanne.  Hún ætlar kannski að ráða mig í au-pair stöðu í heilt ár.  Ég á erfitt með mig.  Mér finnst erfitt að ætla að fara og missa af svo mörgu hér heima. 

 Mig langar að fara.

Mig langar ekki að fara.

Þetta verður spennandi ef ég ákveð að fara.  En ég á svo erfitt með að hugsa mér að fara frá þeim sem ég elska.  Af hræðslu við að missa þá.

 En hvað segir það? Er ég þá háð þeim sem ég elska?  Ég veit alveg að vinir mínir verða áfram vinir mínir.  Ég er bara svo hrædd um að allt breytist, bæði ég og aðrir og að allir gleymi mér.  Ég er komin á svo góðan stað í leiklistinni og á þeim ferli mínum, að ég er svo hrædd um að ef ég fer þá gelymi fólk mér.  Og að fólk finni einhvern í minn stað.  Að ég missi stöðu mína í lífi fólks.

En ég á eftir að upplifa helling ef ég fer.  Mig langar bara ekki að missa fólk.  Einn ákveðinn aðila.  Sem ég tala ekki um. Af því að við tölum ekki um neitt.  Ekki um þetta.  Uss, það má ekki tala.  Af hverju er þögnin?  Hvar er heiðarleikinn í því að vera ekki eins og maður vill?  Að leyna því sem maður vill ekki leyna.  Samt er maður ekki að leyna því.  Maður talar bara ekki um það af fyrra bragði.  Maður þagar.  Lætur eitthvað ósagt.  Líður stundum illa, stundum ekki.  Skilur ekki upp né niður í neinu.

Þá hef ég sagt það.  En þagað þó.


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 14:15:22 / grima

Hvernig stútaði ég henni?

Jebb, fékk líka þessa afbragðs pizzu í gær.  Á Kringlukránni, mmmmmmmm.  Besta pizza í heimi.  Næstum, ég fór náttúrulega til Ítalíu einu sinni og það toppar ekkert pizza staðinn við hliðina á hótelinu okkar þar.  En hún lendi pottþétt í 2. sæti!!!!

Í gær var Þjóðarsál.  Við hittumst og tókum eitt atriði úr Þjóðarsálinni á list án landamæra í Borgarleikhúsinu í gær.  Það var gaman.  Svo var partýast og drukkið dansað sungið og haft gaman.

 Ég var að sækja um starf.  Úti í DK.  Veit ekki einu sinni hvenær það verður.  En ef ég fæ það verð ég glöð, sama hvenær það er.  Ég hlakka til að fá að vita.

Settu sjálfan þig í forgang.  Hjálpaðu öðrum, þannig hjálparðu sjálfum þér.  Með því að setja aðra sem þurfa hjálp í forgang seturðu sjálfan þig í forgang.


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 10:35:01 / grima

Gleði......hvar?

Í stöðugri leit okkar að hamingju og gleði inn í líf okkar gleymum við að horfa sem næst okkur.  Við gleymum að sjá það sem við höfum.  Ef við reynum að segja "takk" á hverjum einasta degi, fyrir hvern staf í stafrófinu, þá myndi okkur ef til vill líða betur

 Takk fyrir.....

a: Að fá að vera til

á: ástina sem ég ber til annara og aðrir bera til mín

b: B-vítamín

d: Dómgreindina

og svo framvegis......


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.03.2007 02:26:06 / grima

Hamingja?

Hvar er hamingjan?

Hún er hér, innst í hjartanu......

:haha:

Gjörðu svo vel,

takk!

Hvernig finnst þér?

þetta er gott, já ég fíla þetta en ég er samt að hugsa um að henda þessu....

Af hverju?

Af því að ég vil ekki þyggja neitt frá öðrum, ég er of stolt

Það er fáránlegt

Já ég veit

Af hverju viltu þá henda þessu

Af því ég get ekki gefist upp og verið æðrulaus........

 

Saga úr fortíðinni


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 02:02:25 / grima

Hvað er títt!!*??

Jæja, þá og jamm og já......

 Nú er ég hér og hef ekkert að segja en samt skrifa ég

Það er líka ágætt að þegja stundum og skrifa bara þess í staðinna

Ég er á hugleiðslunámskeiði núna á fimmtudögum, búin að fara einu sinni og á eftir tvö skipti, það er alveg heint magnað.  Að einbeita sér að einum hlut og hugleiða er bara magnað.  Ótrúlegt en satt.......

Fyndið hvað ég missi stundum hæfileikann til að skrifa, alveg ótrúlegt, stundum er ég meiriháttar penni en aðrar stundir er ég bara í ruglinu, líkt og núna.......

Enda hef ég ekki margt að segja og engar hugleiðingar sérstakar í gangi

Það er svolítið eins og ég hafi týnt sjálfri mér.  Áður fyrr var ég svo viss um hvað ég vildi gera og hvað mér fannst, ég gat tekið ákvarðanir og giskað og spunnið........í rauninni sleppt tökunum á sjálfri mér.  En nú hef ég sett mér einhverjar hömlur.  Eins og ég vilji taka mig út úr öllum samhengjum og vera bara áhorfandi.  Sleppa því að taka þátt og bara fylgjast með, vonandi það að enginn taki eftir mér og fólk spyrji mig einskis og virði mig ekki viðlits.  Þetta er ákveðin vörn.  Að þurfa ekki að taka ákvörðun og einfaldlega ekki þora það, af ótta já ég endurtek....ÓTTA, við að mæta einhverjum fordómum og höfnun.

Enda lifum við öll í ótta.  Þó við gerum okkur ekki grein fyrir því.  Allar okkar gjörðir, eða flestar, eru knýjaðar áfram af ótta.  Þegar maður veit þetta en gerir svo ekkert í því er maður FUCKED.  Það er hreint helvíti að líða illa, vita orsökina, vita um lausnina, en teyja sig svo ekki út eftir henni.  Bara vita af henni, heyra um hana á hverjum degi og gera svo ekkert í því.´

Jafnvel er maður kominn hálfa leið út í laugina, en fer svo bara að troða marvaða (eða hvað svo sem það heitir) og fylgist með öllum synda, það er ágætt í smá tíma en maður þreytist jú.  Þá veit maður að það er best að synda að hinum enda bakkarins, en það verður erfitt, en það er ekkert auðveldara að halda bara áfram að troða marvaða og eftir því sem maður bíður með það að klára sundið, því efriðara verður að synda, því maður verður jú þreyttari og þreyttari.

Ég er orðin þreytt, og ég gerði e-ð í því í dag. Og nú verð ég að halda áfram að synda, þó það sé erfitt, en það er ekkert auveldara að troða bara marvaða.

Svo er líka mjög gott að hægja á sér stöku sinnum og fylgjast með öðrum og ef einhver er í vandræðum verður maður að hjálpa honum, því maður vill jú að fókk geri skíkt hið sama fyrir mann.

Já, ég vona að ég haldi mínu sundi áfram og stoppi ekki, en hlálpi mörgum og fylgi taktinum


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6